Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á starfsemi Allianz Íslands hf. söluumboði

4.6.2010

Framkvæmd var athugun á starfsemi Allianz Íslands hf. söluumboði (Allianz) með heimsókn og gagnaöflun dagana 26.-27. maí 2009. Athugunin beindist að því að skoða starfsemi Allianz, þá sérstaklega upplýsingagjöf og kynningarefni viðskiptavina á Ævilífeyri. Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna fresta. Voru drög að skýrslunni afhent framkvæmdastjóra Allianz þann 23. október 2009 og honum gefið tækifæri á að koma sjónarmiðum félagsins og frekari upplýsingum á framfæri. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 11. desember 2009, var tekið tillit til þeirra athugasemda eftir því sem tilefni þótti til. Skýrsla innri endurskoðanda um hvernig Allianz hefði staðið að úrbótum á þeim atriðum sem vikið var að í skýrslunni barst Fjármálaeftirlitinu 22. janúar 2010.

AthAllianz4.6.2010

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica