Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða um brot Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á 126. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

9.4.2019

Hinn 18. mars 2019 komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefði brotið gegn 3. ml. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) þar sem sjóðurinn tilkynnti Fjármálaeftirlitinu ekki samdægurs um að hafa lánað viðskiptavaka skuldabréf útgefin af sjóðnum (svokölluð verðbréfalán). Um var að ræða nokkurn fjölda tilvika á tímabilinu 20. ágúst 2009 til 30. maí 2018.
Gagnsaei-Lanasjodur-sveitarfelaga-09042019  

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica