Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Arion banka hf.

12.1.2016

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Arion banka hf. með bréfi dagsettu hinn 27. júlí 2015. Athugunin beindist að tilteknum þáttum er varða eftirlit Arion banka hf. samkvæmt lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmið athugunarinnar var að skoða hvort staðið hefði verið með viðunandi hætti að áreiðanleikakönnun, sem framkvæma skal við upphaf samningssambands, sem og hvort reglubundið eftirlit hefði átt sér stað í kjölfarið, sérstaklega með tilliti til þess hvort uppfærðra upplýsinga um viðskiptavini hefði verið aflað. 
Arion-banki-hf.-12-1-2016

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica