Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Leiðbeinandi tilmæli

Málsnúmer 4/2006
Heiti Leiðbeinandi tilmæli um efni reglna samkvæmt 2. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002] - [Ekki í gildi]
Dagsetning 22/12/2006
Starfsemi
  • Viðskiptabankar
  • Sparisjóðir
  • Lánafyrirtæki
  • Verðbréfafyrirtæki
  • Verðbréfamiðlanir
  • Rekstrarfélög verðbréfasjóða
Reifun

Fjármálaeftirlitið setur leiðbeinandi tilmæli um efni reglna skv. 2. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002. Í 2. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, er kveðið á um framkvæmd starfa stjórna fjármálafyrirtækja. Kemur þar fram að stjórn skuli setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa stjórnarinnar. Einkum skal fjallað um framkvæmd reglna um sérstakt hæfi stjórnarmanna, meðferð stjórnar á upplýsingum um einstaka viðskiptamenn, setu stjórnarmanna í stjórnum dótturfyrirtækja og hlutdeildarfélaga, og framkvæmd reglna um meðferð viðskiptaerinda stjórnarmanna. Einnig er kveðið á um að reglur þessar skuli sendar Fjármálaeftirlitinu.

Leiðbeinandi tilmæli þessi ná til þeirra atriða sem sérstaklega taka til fjármálafyrirtækja. Ekki er um tæmandi lýsingu á efni reglnanna að ræða heldur er fjallað um tiltekin atriði sem hafa verið til sérstakrar umræðu í samskiptum eftirlitsins við fjármálafyrirtæki. Vera kann að síðar reynist ástæða til þess að fjalla um fleiri atriði reglnanna í leiðbeinandi tilmælum.

Haft er að leiðarljósi að innri starfsreglum er ætlað að tryggja jafnræði við meðferð mála og vandaða og óháða málsmeðferð. Tilgangur þeirra er að tryggja skýrleika í málsmeðferð ásamt því að styrkja umgjörð um viðskipti stjórnarmanna og félaga þeim tengdum við fjármálafyrirtækið og aðgang stjórnarmanna að upplýsingum um viðskiptamenn. Reglur af þessu tagi eru jafnframt til þess fallnar að efla traust íslensks fjármálamarkaðar.

Tilmælunum fylgja skáletraðar nánari skýringar þegar við á.

Leiðbeinandi tilmæli þessi voru sett í framhaldi af endurskoðun á leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2003. Eftirfarandi tilmæli hafa verið leyst af hólmi með leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2010 um efni reglna samkvæmt 2. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, endurskoðun á leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2006

Skjöl Leidbeinandi_tilmaeli_2006_4.pdf

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica