Eftirlitsskyld starfssemi
Í 2. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi er kveðið á um hvaða flokkar fjármálafyrirtækja og aðila í fjármála- og vátryggingastarfsemi lúta eftirlitið Fjármálaeftirlitsins. Þeir eru eftirfarandi:
- Viðskiptabankar (lög nr. 161/2002)
- Sparisjóðir (lög nr. 161/2002)
- Lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar) (lög nr. 161/2002)
- Verðbréfafyrirtæki (lög nr. 161/2002)
- Verðbréfamiðlanir (lög nr. 161/2002)
- Rekstrarfélög verðbréfasjóða (lög nr. 161/2002)
- Verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir (lög nr. 128/2011)
- Vátryggingafélög (lög nr. 56/2010)
- Félög og einstaklingar sem stunda vátryggingamiðlun (lög nr. 32/2005)
- Kauphallir og skipulegir tilboðsmarkaðir (lög nr. 34/1998)
- Verðbréfamiðstöðvar (lög nr. 131/1997)
- Lífeyrissjóðir (lög nr. 129/1997)
- Innlánsdeildir samvinnufélaga (lög nr. 22/1991)
- Innheimtuaðilar (lög nr. 95/2008)
- Greiðsluþjónusta (lög nr. 120/2011)
- Útgáfa og meðferð rafeyris (lög nr. 17/2013)
Eftirlit samkvæmt sérlögum
Fjármálaeftirlitinu er einnig falið eftirlit með nokkrum aðilum sem starfa samkvæmt sérlögum. Þessir aðilar eru Íbúðalánasjóður, Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta og Tryggingasjóður sparisjóða.
Um eftirlit með starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hér á landi fer samkvæmt ákvæðum sérlaga og alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að.
Ný verkefni
- Eftirlit með slitastjórnum: Með lögum nr. 78/2011 um breytingu á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum (slit, eftirlit og innleiðing) er Fjármálaeftirlitinu gert að hafa sérstakt eftirlit með slitum fjármálafyrirtækja sem stýrt er af slitastjórnum, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki er með starfsleyfi, hefur takmarkað starfsleyfi eða starfsleyfið hefur verið afturkallað.
