Ákvarðanir og gagnsæi


Vettvangskönnun Fjármálaeftirlitsins hjá NBI hf. vegna kosningar stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins í október 2009.

20.5.2010

Þann 23. október sl. var framkvæmd vettvangskönnun í tengslum við stjórnarkjör Íslenska lífeyrissjóðsins vegna kosningar stjórnar hans á aukaársfundi 19. október 2009. Athugunin beindist sérstaklega að umboðssöfnun starfsmanna bankans á atkvæðum annarra starfsmanna bankans sem jafnframt eru sjóðfélagar Íslenska lífeyrissjóðsins. Í þessu sambandi verður að hafa í huga þau sérstöku tengsl sem eru á milli Íslenska lífeyrissjóðsins og Landsbankans, sem byggja á rekstrarsamningi þessara aðila frá árinu 2007. Sá samningur kveður á um að Landsbankinn annist allan daglegan rekstur sjóðsins. Þá skipar Landsbankinn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins á grundvelli ofangreinds rekstrarsamnings og er framkvæmdastjórinn launaður starfsmaður Landsbankans, en ekki lífeyrissjóðsins sjálfs. Fjármálaeftirlitið sendi regluverði NBI hf. og Íslenska lífeyrissjóðnum bréf um niðurstöðu könnunarinnar og kallaði eftir sjónarmiðum þeirra og veitti tækifæri til andmæla vegna hennar. Svarbréf lífeyrissjóðsins barst 29. mars sl.

VettvangskNBI20.5.2010

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica