Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á fjárfestingum hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum

23.2.2011

Framkvæmd var athugun á fjárfestingum Sameinaða lífeyrissjóðsins með heimsókn og gagnaöflun dagana 10.-12. nóvember 2010 með vísan til 44. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna tímamarka. Voru drög að skýrslunni afhent sjóðnum þann 5. janúar 2011 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sjóðsins og frekari upplýsingum á framfæri fyrir 26. janúar. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 11. febrúar 2011, var tekið tillit til sjónarmiða sjóðsins eftir því sem tilefni þótti til. Fjármálaeftirlitið óskar eftir því við stjórn lífeyrissjóðsins að hún feli innri eftirlitsaðila að gera sérstaka grein fyrir því hvort gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana vegna ábendinga og athugasemda sem fram koma í þessari skýrslu. Greinagerð innra eftirlits verði send Fjármálaeftirlitinu eigi síðar en 30. apríl 2011.

AthSL23.2.2011

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica