Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á fylgni verðbréfasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga

1.12.2017

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á starfsemi Landsbréfa hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017. Athugunin beindist að fylgni tiltekins verðbréfasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. við  2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Í nefndum lagaákvæðum eru settar þær takmarkanir á eignasafn sjóðsins að honum er hvorki heimilt að eignast meira en 10% af skuldaskjölum einstakra útgefenda verðbréfa, þó aldrei umfram 25% í hverri útgáfu, né meira en 10% af peningamarkaðsgerningum einstakra útgefenda. Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðsins um síðastliðin áramót.
Gagnsaei-Landsbref-1-12-2017

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica