Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á aðskilnaði starfssviða hjá Arion banka hf.

11.1.2016

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á aðskilnaði starfssviða hjá Arion banka hf. í lok árs 2014. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort aðskilnaður starfssviða hjá bankanum væri í samræmi við kröfur 8. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og 4. þáttar reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, sem Fjármálaeftirlitið hefur útfært nánar í leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2014 um aðskilnað starfssviða. Athugunin beindist að aðskilnaði starfssviða í húsnæði bankans, aðskilnaði í stjórnun og  aðskilnaði gagna.  Að auki voru reglur, stefnur og önnur skjöl bankans þessu tengd skoðuð. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í desember 2015.
Gagnsaei-Arion-adskilnadur-starfssvida-11-01-2016

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica