Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: 2016

Fyrirsagnalisti

23.12.2016 : Samkomulag um sátt vegna brots Megindar ehf. á 40. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki

Hinn 14. nóvember 2016 gerðu Fjármálaeftirlitið og Megind ehf., hér eftir nefndur málsaðili með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 40. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Lesa meira

23.12.2016 : Niðurstaða athugunar á mati á hæfi og tilhlýðileika fjármálaþjónustu Kviku banka hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á mati Kviku banka á hæfi viðskiptavina sinna vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar og tilhlýðileika fjármálaþjónustunnar þann 6. maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort verklag og eftirlit bankans í tengslum við öflun upplýsinga og ráðlegginga vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar væri í samræmi við 15. og 16. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr. 35. og 36. gr. reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskipti fjármálafyrirtækja.

Lesa meira

21.11.2016 : Samkomulag um sátt vegna brots Íslandsbanka hf. á 1. mgr. 18. gr. laga nr. 108/2007

Hinn 27. október 2016 gerðu Fjármálaeftirlitið og Íslandsbanki hf. (hér eftir nefndur málsaðili) með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 18. gr. laga nr. 108/2007.

Lesa meira

14.11.2016 : Niðurstaða athugunar á uppsagnarfresti vátryggingarsamninga og tilkynningum þar að lútandi

Haustið 2016 framkvæmdi Fjármálaeftirlitið athugun á uppsagnarfresti vátryggingarsamninga og tilkynningum þar að lútandi hjá íslenskum vátryggingafélögum. 

Lesa meira

5.10.2016 : Niðurstaða um að Aktiva lausnir ehf. hafi stundað greiðsluþjónustu án tilskilins leyfis

Aktiva lausnir ehf. hóf í sumar að bjóða þjónustu sína við milligöngu um lánveitingar á milli viðskiptavina sinna. Hlutverk Aktiva lausna ehf. er m.a. að tengja saman lántakendur og lánveitendur á sk. lánatorgi. Þjónusta félagsins lýtur einnig að flokkun lántakenda eftir greiðslumati og móttöku og miðlun greiðslna á milli lántakenda til lánveitenda. 

Lesa meira

28.9.2016 : Niðurstöður athugunar á áhættustýringu Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á framkvæmd áhættustýringar hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda í maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvernig áhættustýringu sjóðsins væri háttað og hvort hún samræmdist leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2013 um áhættustýringu (eftirlitskerfi) samtryggingadeilda lífeyrissjóða. Tilmælin eru sett til leiðbeiningar og nánari skýringa fyrir samtryggingadeildir lífeyrissjóða varðandi þær lágmarkskröfur sem meðal annars koma fram í 9. tölul. 3. mgr. 29. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og reglugerð nr. 916/2009 um fjárfestingarstefnu og úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í ágúst 2016.

Lesa meira

28.9.2016 : Niðurstöður athugunar á áhættustýringu Almenna lífeyrissjóðsins

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á framkvæmd áhættustýringar hjá Almenna lífeyrissjóðinum í maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvernig áhættustýringu sjóðsins væri háttað og hvort hún samræmdist leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2013 um áhættustýringu (eftirlitskerfi) samtryggingadeilda lífeyrissjóða. Tilmælin eru sett til leiðbeiningar og nánari skýringa fyrir samtryggingadeildir lífeyrissjóða varðandi þær lágmarkskröfur sem meðal annars koma fram í 9. tölul. 3. mgr. 29. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og reglugerð nr. 916/2009 um fjárfestingarstefnu og úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í ágúst 2016.

Lesa meira

21.9.2016 : Niðurstaða athugunar á mati á hæfi og tilhlýðileika fjármálaþjónustu Arion banka hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á mati Arion banka á hæfi viðskiptavina sinna vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar og tilhlýðileika fjármálaþjónustunnar þann 6. maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort verklag og eftirlit bankans í tengslum við öflun upplýsinga og ráðlegginga vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar væri í samræmi við 15. og 16. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr. 35. og 36. gr. reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskipti fjármálafyrirtækja.

Lesa meira

29.7.2016 : Niðurstaða athugunar á fjárfestingum fjárfestingarsjóðs í rekstri Stefnis hf.

Fjármálaeftirlitið tók til athugunar fjárfestingar fjárfestingarsjóðs í rekstri Stefnis hf.  og lagði mat á hvort þær hafi brotið gegn a. lið 1. tölul. 4. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.

Lesa meira

13.7.2016 : Niðurstaða athugunar á útlánum Sparisjóðs Austurlands hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á útlánum hjá Sparisjóði Austurlands hf. í desember 2015. Markmið athugunarinnar var að kanna gæði útlánasafns sparisjóðsins, með tilliti til 17., 19, 30.  og 88. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og reglna nr. 670/2013 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, reglna nr. 625/2013 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum og reglna nr. 834/2003 um reikningsskil lánastofnana
Gagnsæistilkynning Sparisjóður Austurlands

Lesa meira

24.6.2016 : Samkomulag um sátt vegna brots Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. á 1. mgr. 78. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 3. júní 2016 gerðu Fjármálaeftirlitið og Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf., hér eftir nefnt málsaðili, með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 78. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Gagnsaeistilkynning-ESI-ehf

Lesa meira

24.6.2016 : Samkomulag um sátt vegna brots Dróma hf. á 1. mgr. 78. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 19. maí 2016 gerðu Fjármálaeftirlitið og Drómi hf., hér eftir nefndur málsaðili, með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 78. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Gagnsaeistilkynning-Dromi-hf.

Lesa meira

23.6.2016 : Niðurstaða athugunar á útlánum Sparisjóðs Strandamanna ses

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á útlánum hjá Sparisjóði Strandamanna ses. í október 2015. Markmið athugunarinnar var að kanna gæði útlánasafns sparisjóðsins, með tilliti til 17., 19. 30. gr. og 88. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og reglna nr. 670/2013 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, reglna nr. 625/2013 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum og reglna nr. 834/2003 um reikningsskil lánastofnana. 

Lesa meira

3.6.2016 : Samkomulag um sátt vegna brots Greiðslumiðlunarinnar Hrings ehf. á 1. mgr. 58. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 29. mars 2016 gerðu Fjármálaeftirlitið og Greiðslumiðlunin Hringur ehf., hér eftir nefndur málsaðili, með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 58. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.).

Lesa meira

27.5.2016 : Niðurstaða athugunar á útlánum Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses.

Fjármálaeftirlitið birti gagnsæistilkynningu á heimasíðu sinni hinn 10. febrúar 2016 þar sem gerð var grein fyrir niðurstöðum athugunar Fjármálaeftirlitsins á útlánum hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga ses.

Lesa meira

25.5.2016 : Stjórnvaldssekt vegna brots Marel hf. gegn 1. mgr. 87. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 11. maí 2016 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins þá ákvörðun að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.500.000 krónur á Marel hf.  (Marel eða félagið) vegna brots gegn 1. mgr. 87. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) með því að hafa látið hjá líða að birta tilkynningu, sem félaginu barst 29. október 2014 um breytingu á atkvæðisrétti, innan lögmæltra tímamarka.

Lesa meira

25.5.2016 : Athugun á umfangi þjónustu eftirlitsskyldra aðila við lögaðila sem skráðir eru í lágskattaríkjum og fjárfestingum þeirra í slíkum lögaðilum

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á umfangi þjónustu fjármálafyrirtækja við lögaðila sem skráðir eru í lágskattaríkjum í tilefni af opinberri umfjöllun um svonefnd Panama-skjöl, m.a. umfjöllun um þjónustu viðskiptabanka á Norðurlöndunum í tengslum við stofnun og rekstur svonefndra aflandsfélaga. Jafnframt óskaði Fjármálaeftirlitið eftir upplýsingum um umfang fjárfestinga lífeyrissjóða og vátryggingafélaga í slíkum lögaðilum.

Lesa meira

24.5.2016 : Niðurstöður athugunar á líftíma eigna og skuldbindinga samtryggingardeildar Stapa lífeyrissjóðs

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á eigna- og skuldbindingajöfnuði samtryggingardeildar Stapa lífeyrissjóðs í október 2015, einkum líftíma eigna og skuldbindinga. Markmið athugunarinnar var að skoða flökt sem var á meðallíftíma skuldbindinga sjóðsins samkvæmt álagsprófum Fjármálaeftirlitsins fyrir árin 2012 til 2014 og fá innsýn í það hvernig sjóðurinn fylgist með meðallíftíma eigna og skuldbindinga.

Lesa meira

24.5.2016 : Niðurstöður athugunar á líftíma eigna og skuldbindinga samtryggingardeildar Stafa lífeyrissjóðs

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á eigna- og skuldbindingajöfnuði samtryggingardeildar Stafa lífeyrissjóðs í október 2015, einkum líftíma eigna og skuldbindinga. Markmið athugunarinnar var að skoða flökt sem var á meðallíftíma skuldbindinga sjóðsins samkvæmt álagsprófum Fjármálaeftirlitsins fyrir árin 2012 til 2014 og fá innsýn í það hvernig sjóðurinn fylgist með meðallíftíma eigna og skuldbindinga.

Lesa meira

13.5.2016 : Niðurstaða athugunar á greiðslu kaupauka til tveggja framkvæmdastjóra Tryggingamiðstöðvarinnar hf.

Fjármálaeftirlitið tók til athugunar kaupaukagreiðslur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) sem veittar voru tveimur framkvæmdastjórum TM vegna ársins 2014. Hvor um sig fékk kaupauka sem nam 10% af árslaunum þrátt fyrir að hafa ekki náð tilskildum lágmarksárangri fyrir veitingu þeirra samkvæmt lykilmælikvörðum settum af stjórn TM í samræmi við kaupaukakerfi félagsins. TM rökstuddi veitingu kaupaukanna með tilvísan til 79. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög (hfl.) þ.e. að kaupaukakerfi TM væri undirskjal starfskjarastefnu félagsins sem stjórn gæti vikið frá enda hefði frávikið verið rökstutt sérstaklega með vísan til árangurs aðila í starfi og rökstuðningurinn skráður í gerðarbók stjórnar. Frávikið hefði jafnframt verið í fullu samræmi við skilyrði 55. gr. laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi (vtrl.) og reglur Fjármálaeftirlitsins nr. 299/2012 um kaupaukakerfi vátryggingafélaga. TM hefði því verið heimilt að víkja að nokkru frá ákvæði kaupaukakerfis félagsins um þetta efni.

Lesa meira
Síða 1 af 2






Þetta vefsvæði byggir á Eplica