Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: 2014

Fyrirsagnalisti

20.11.2014 : Niðurstaða athugunar á lánveitingum Lífsverks lífeyrissjóðs til einstaklinga

Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á lánveitingum Lífsverks lífeyrissjóðs til einstaklinga. Athugunin var framkvæmd á þriðja ársfjórðungi 2014.

Lesa meira

13.11.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Straum fjárfestingabanka hf., Siglu ehf. og Ark ehf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í MP banka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Straumur fjárfestingabanki hf., Sigla ehf. og Arkur ehf., séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í MP banka hf., sem nemur 25%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002. Fjármálaeftirlitið hefur metið að samstarf sé um hinn virka eignarhlut, í merkingu 5. tölul. 1. gr. a) laga 161/2002, á milli Straums fjárfestingabanka hf., sem eignast hefur 19,54% í MP banka hf., Siglu ehf., sem átti fyrir 0,94% og Arks ehf., sem átti fyrir 2,56% hlut í MP banka. Samstarfið telst vera til staðar vegna eigna- og stjórnunartengsla sem eru með aðilunum. Lesa meira

10.11.2014 : Niðurstöður athugunar hjá Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankanum hf. á tilteknum þáttum í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Hinn 21. maí 2014 hóf Fjármálaeftirlitið athugun hjá Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankanum hf. (hér eftir bankarnir). Athugunin beindist að tilteknum þáttum í aðgerðum bankanna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 64/2006. Í athuguninni var lögð sérstök áhersla á könnun bankanna á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptamenn sína í tengslum við fjarsölu, einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og millibankaviðskipti. Auk þess var þjálfun starfsmanna, skýrsla ábyrgðarmanns, úttektir endurskoðunardeildar og verklag og ferlar í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, tekin til skoðunar.

Lesa meira

6.11.2014 : Samkomulag um sátt vegna brots Fjarskipta hf. á 122. og 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 28. ágúst 2014 gerðu Fjármálaeftirlitið og Fjarskipti hf. með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots félagsins á 122. og 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Lesa meira

31.10.2014 : Niðurstaða athugunar á fjárfestingum Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands

Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á fjárfestingum Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. Athugunin fór fram á þriðja ársfjórðungi 2014.

Lesa meira

23.10.2014 : Samkomulag um sátt vegna brots N1 hf. á 87. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 29. ágúst 2014 gerðu Fjármálaeftirlitið og N1 hf. með sér samkomulag um að ljúka máli með sátt vegna brots félagsins á 87. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl).

Lesa meira

3.10.2014 : Niðurstöður athugunar á útlánasafni Landsbankans hf.

Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á útlánasafni Landsbankans hf. Markmið hennar var að kanna áreiðanleika virðismats á lánum til stærstu lánþega bankans með því að skoða virðismatsferli hans. Þess ber að geta að áður en athugun Fjármálaeftirlitsins hófst hafði Landsbankinn hf. hafið vinnu að þróun og mótun nýs virðismatsferlis. Niðurstöður eftirlitsins lágu fyrir í nóvember 2013 og byggðu þær á gögnum og upplýsingum miðað við hinn 30. september 2012.

Lesa meira

30.9.2014 : Lýsing hf. verður við kröfum Fjármálaeftirlitsins um upplýsingagjöf til viðskiptavina

Þann 20. ágúst 2014 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvörðun um að dagsektir skyldu lagðar á Lýsingu að fjárhæð 200.000 krónur á dag, og skyldu þær leggjast á félagið átta dögum frá birtingu ákvörðunarinnar, ef ekki yrði orðið við kröfum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvörðun þess frá 11. september 2013.

Lesa meira

9.9.2014 : Niðurstaða athugunar á tilteknum þáttum í starfsemi Festu lífeyrissjóðs

Á seinni hluta árs 2013 hóf Fjármálaeftirlitið vettvangsathugun á tilteknum þáttum í starfsemi Festu lífeyrissjóðs. Markmið athugunarinnar var m.a. að kanna stjórnarhætti, fjárfestingar, áhættustýringu og upplýsingakerfi sjóðsins. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir, ábendingar og kröfur um úrbætur. Niðurstöður Fjármálaeftirlitsins, sem lágu fyrir í júlí 2014, byggðu á þeim gögnum og upplýsingum sem aflað var við athugunina og miðuðust við stöðu mála á þeim tíma sem athugunin fór fram.

Fjármálaeftirlitið taldi að þeir þættir sem vettvangsathugunin beindist að væru almennt í góðu horfi hjá Festu lífeyrissjóði. Helstu athugasemdir Fjármálaeftirlitsins voru eftirfarandi.

Lesa meira

1.9.2014 : Niðurstaða athugunar á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga

Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga. Athugunin var framkvæmd á öðrum ársfjórðungi 2014.

Lesa meira

1.9.2014 : Samkomulag um sátt vegna brots Eikar fasteignafélags hf. á 122. gr. laga nr. 108/2007

Hinn 7. júlí 2014 gerðu Fjármálaeftirlitið og Eik fasteignafélag hf. með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots félagsins á 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Lesa meira

9.7.2014 : Samkomulag um sátt vegna brots Marel hf. á 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 30. apríl 2014 gerðu Fjármálaeftirlitið og Marel hf. með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots félagsins á 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Lesa meira

7.7.2014 : Sáttargerð vegna brots Sæness ehf. á 40. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki

Fjármálaeftirlitið og Sænes ehf. hafa gert með sér sátt vegna brots félagsins á 40. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki (fftl.)

Lesa meira

12.6.2014 : Gagnsæistilkynning vegna athugasemda við viðskiptahætti hjá Verði tryggingum hf.

Fjármálaeftirlitinu barst ábending um að Vörður tryggingar hf. hefði einhliða og án samráðs við vátryggingartaka breytt lögbundinni brunatryggingu skála sem var í smíðum (sk. smíðatryggingu) í lausafjártryggingu.

Lesa meira

26.5.2014 : Endurmat á því hvort Verðbréfaskráning Íslands hf. uppfylli tiltekin alþjóðleg tilmæli um öryggi verðbréfauppgjörs

Veturinn 2011-2012 gerði Fjármálaeftirlitið athugun á uppgjörsumhverfinu á Íslandi og uppgjörskerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. (Verðbréfaskráning). Athugunin var gerð í samvinnu við Seðlabanka Íslands. Í athuguninni var skoðað hvort uppgjörsumhverfið á Íslandi og verðbréfauppgjörskerfi Verðbréfaskráningar uppfylltu skilyrði tilmæla Evrópska Seðlabankans og CESR (samtök evrópskra verðbréfaeftirlita) frá árinu 2009 (e. Recommendations for Securities Settlement Systems).

Lesa meira

16.5.2014 : Niðurstaða athugunar á lánveitingum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda til einstaklinga

Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á lánveitingum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda til einstaklinga. Athugunin var framkvæmd á fyrsta ársfjórðungi 2014.

Lesa meira

9.5.2014 : Niðurstaða athugunar á fjárfestingum Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga

Á fyrsta ársfjórðungi 2014 framkvæmdi Fjármálaeftirlitið athugun á því hvort fjárfestingar Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga væru í samræmi við gildandi lög og fjárfestingarheimildir.

Lesa meira

2.5.2014 : Niðurstaða athugunar á þáttum í starfsemi LSR

Hinn 4. september 2013 hóf Fjármálaeftirlitið athugun á þáttum í starfsemi LSR (Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins) sem tók m.a. til stjórnarhátta, fjárfestinga, áhættustýringar og upplýsingakerfa. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir, ábendingar og kröfur um úrbætur. Niðurstöður Fjármálaeftirlitsins byggðu á þeim gögnum og upplýsingum sem aflað var við athugunina og miðast við stöðu mála hinn 20. september 2013.

Lesa meira

31.3.2014 : Stjórnvaldssekt vegna brots gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti

Þann 19. mars 2014 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvörðun um að sekta Icelandair Group hf. (Icelandair) vegna brota gegn 122. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti (hér eftir vvl.).

Lesa meira

13.3.2014 : Niðurstaða athugunar á starfsemi Virðingar hf.

Hinn 26. febrúar 2013 framkvæmdi Fjármálaeftirlitið almenna athugun á starfsemi Virðingar hf. Rétt er að geta þess að athugunin beindist að Virðingu hf. áður en félagið sameinaðist Auði Capital hf. í febrúar 2014 undir nafni Virðingar hf. Athugunin tók til stjórnarhátta, regluvörslu, fjárfestaverndar, aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, eignastýringar, markaðsviðskipta og upplýsingatækni. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir, ábendingar og kröfur um úrbætur. Niðurstöður Fjármálaeftirlitsins byggðu á þeim gögnum og upplýsingum sem aflað var við athugunina og miðast við stöðu mála hinn 20. desember 2012.

Lesa meira
Síða 1 af 2






Þetta vefsvæði byggir á Eplica