Fréttir


Yfirlýsing vegna áskriftasöfnunar á vefsíðunni hluthafi.com

15.4.2019

Fjármálaeftirlitið hóf í gær athugun á hlutafjárútboði sem auglýst er á vefsíðunni hluthafi.com. Á síðunni kemur fram að óskað sé eftir hlutafjárloforði a.m.k. tíu til tuttugu þúsund hluthafa í þeim tilgangi að endurreisa flugfélagið WOW eða stofna nýtt lággjaldaflugfélag.

Fjármálaeftirlitið taldi að framangreind áskriftarsöfnun félli undir hugtakið almennt útboð verðbréfa, sbr. 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, en með almennu útboði er átt við hvers konar boð til almennings um kaup á verðbréfum. Áður en farið er í almennt útboð verðbréfa þarf að gefa út lýsingu í samræmi við 1. mgr. 44. gr. laga um verðbréfaviðskipti.

Fyrr í dag sendi Fjármálaeftirlitið erindi til forsvarsmanna hluthafi.com þar sem gerð var krafa um að heimasíðunni yrði lokað þar sem ekki virtust uppfyllt skilyrði laga um verðbréfaviðskipti, m.a. varðandi útgáfu lýsingar. Í kjölfar þessa hafa forsvarsmenn hluthafi.com breytt fyrirkomulagi áskriftarsöfnunarinnar á þann hátt að nú er miðað við skráningu fyrir hlutaskírteini í einkahlutafélagi sem fellur ekki undir lög um verðbréfaviðskipti.

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á að almennir fjárfestar njóta ekki sömu verndar vegna kaupa í einkahlutafélagi og þegar þeir taka þátt í almennu hlutafjárútboði. 

Yfirlysing-FME-vegna-hluthafi.com-15.4.2019

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica