Fréttir


Uppfærð viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum

29.1.2018

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út uppfærð viðmið og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum (SREP). Viðmiðin byggja á umræðuskjali nr. 16/2017 sem er að finna undir umræðuskjöl á vef Fjármálaeftirlitsins. Umsagnir vegna umræðuskjalsins er að finna á sömu undirsíðu.

Markmiðið með viðmiðunum er að skilgreina og kynna aðferðafræði og framkvæmd könnunar- og matsferlis Fjármálaeftirlitsins. Við uppfærslu skjalsins hafa verið gerðar breytingar á þeim hluta viðmiðanna sem snýr að mati Fjármálaeftirlitsins á eiginfjárþörf, og er í 3. kafla viðmiðanna að finna efni sem varðar muninn á kröfum vegna stoðar II-R og stoðar II-G. Þá bætast við þrír viðaukar sem innihalda viðmið Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárþörf vegna útlána- og samþjöppunaráhættu annars vegar og markaðsáhættu og fastvaxtaáhættu hins vegar. Þriðji viðaukinn skýrir frá aðferðum Fjármálaeftirlitsins við ákvörðun um eiginfjárauka.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica