Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns.

15.8.2018

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Financial Insurance Company Limited til AXA France IARD. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 23. júlí 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingasamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica