Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

25.6.2018

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Assured Guaranty (London) plc og Assured Guaranty (UK) plc til Assured Guaranty (Europe) plc. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 20. júní 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort fyrirliggjandi séu vátryggingasamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica