Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

24.5.2018

Hér með tilkynnist um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:

Yfirfærsla vátryggingastofns frá RiverStone Insurance Limited til Riverstone Insurance UK Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 22. maí 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort fyrirliggjandi séu vátryggingasamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica