Fréttir


Samruni AFL-sparisjóðs ses. og Arion banka hf.

19.10.2015

Fjármálaeftirlitið samþykkti hinn 15. október 2015 samruna AFL-sparisjóðs ses. og Arion banka hf. á grundvelli 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Arion banki hf. tekur við öllum réttindum og skyldum AFL-sparisjóðs ses. og verða félögin sameinuð undir nafni Arion banka hf.

Samruninn mun ekki hafa áhrif á greiðslustað skuldaskjala en frestur til að gera athugasemdir við yfirfærslu innlánsreikninga skal vera 30 dagar frá birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica