Fréttir


Fjármálaeftirlitið veitir Auði Capital hf. auknar starfsheimildir

5.4.2011

Fjármálaeftirlitið veitti Auði Capital hf. þann 4. apríl sl. auknar starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki. Auður Capital hf. fékk upphaflega starfsleyfi þann 25. apríl 2008. Starfsleyfi Auðar Capital hf. var þann 4. apríl sl. endurútgefið með tilliti til aukinna starfsheimilda.

Upphaflegt starfsleyfi Auðar Capital hf. tók til viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti sem felst í eignastýringu skv. tölulið 6 c og fjárfestingarráðgjöf skv. tölulið 6 d í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Eftir veitingu aukinna starfsheimilda tekur starfsleyfi Auðar Capital hf. einnig til umsjónar með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði samkvæmt tölulið 6 f í 1. mgr. 3. gr. sömu laga.

Til viðbótar við ofangreinda þjónustuþætti tekur endurútgefið starfsleyfi Auðar Capital hf. til vörslu og stjórnunar í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar, þ.m.t. vörslu fjármálagerninga og tengdrar þjónustu, svo sem vegna fjármuna eða trygginga, veitingar lánsheimilda, ábyrgða eða lána til fjárfestis þannig að hann geti átt viðskipti með einn eða fleiri fjármálagerninga ef verðbréfafyrirtæki sem veitir lánsheimildina eða lánið annast viðskiptin, ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótunar og skyldra mála og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaupa á þeim, þjónustu í tengslum við sölutryggingu og gjaldeyrisþjónustu ef umrædd viðskipti eru liður í fjárfestingarþjónustu skv. a, b, c, d og e lið 2. tl. 1. mgr. 25. gr. áðurnefndra laga.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica