Fréttir


Veiting innheimtuleyfis

20.1.2011

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Skipti hf. innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008. Innheimtuleyfi Skipta hf. tekur til frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra skv. a. lið 1. mgr. 3. gr. nefndra laga og innheimtu eigin peningakrafna sem aðili hefur keypt í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni skv. 5. gr. sömu laga.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, S: 525-2700 og GSM: 840-3861.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica