Fréttir


Fjármálaeftirlitið veitir Virðingu hf. auknar starfsheimildir

29.9.2010

Fjármálaeftirlitið veitti Virðingu hf. þann 23. september sl. auknar starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki. Virðing hf. fékk upphaflega starfsleyfi þann 7. nóvember 2001 frá Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu á grundvelli laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti. Starfsleyfi Virðingar var þann 23. september sl. endurútgefið með tilliti til aukinna starfsheimilda.

Upphaflegt starfsleyfi Virðingar hf. tók til viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti sem felst í móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga samkvæmt tölulið 6 a, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina samkvæmt tölulið 6 b, eignastýringu samkvæmt tölulið 6 c og fjárfestingarráðgjöf samkvæmt tölulið 6 d í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Eftir veitingu aukinna starfsheimilda tekur starfsleyfi Virðingar einnig til umsjónar með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði samkvæmt tölulið 6 f í 1. mgr. 3. gr. sömu laga.

Til viðbótar við ofangreinda þjónustuþætti tekur endurútgefið starfsleyfi Virðingar hf. til vörslu og stjórnunar í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar, þ.m.t. vörslu fjármálagerninga og tengdrar þjónustu, svo sem vegna fjármuna eða trygginga og ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótunar og skyldra mála og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaupa á þeim skv. a og c lið 2. tl. 1. mgr. 25. gr. áðurnefndra laga.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica