Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu á vátryggingastofni

16.8.2010

Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna í skaðatryggingum:

Frá General Star International Indemnity Ltd. til Faraday Reinsurance Co. Limited.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra yfirfærslna innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Fjármálaeftirlitið.
16. ágúst  2010.
 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica