Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu á vátryggingastofni

26.7.2010

Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna í líftryggingum:

Frá Prudential Holborn Life Limited og Prudential (AN) Limited til The Prudential Assurance Company Limited.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra yfirfærslna innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Fjármálaeftirlitið.
27. júlí 2010.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica