Fréttir


Fjármálaeftirlitið veitir Kaupskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka hf.

11.1.2010

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Kaupskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka hf. (Arion) fyrir hönd Kaupþings banka hf (Kaupþing). Leyfið er veitt í kjölfar samnings Kaupþings og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 3. september síðastliðinn, þess efnis að Kaupþing gæti eignast 87% hlut í Arion að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Afstaða Fjármálaeftirlitsins til þess hvort Kaupþing, sem er í greiðslustöðvun og slitameðferð, væri  hæft til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki var neikvæð. Fjármálaeftirlitið tók þó fram að vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem leiddu til samkomulagsins, og vegna þess að það felur í sér sátt á milli aðilanna um rekstur Arion sem ætla má að stuðli að stöðugleika á fjármálamarkaði, kæmi til álita að kanna hvort umsækjandi gæti gripið til ráðstafana sem dygðu til að takmarka óæskileg áhrif eignarhaldsins, sbr. 43. gr. l. nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Niðurstaðan var sú að veita leyfið með skilyrðum um afgerandi ráðstafanir er lúta að fjárhagslegum styrk umsækjanda, eignarhaldi bankans, eftirlitshagsmunum og stefnumiðum eigenda.

Fjárhagslegur styrkur umsækjanda skal tryggður með aðgangi að ákveðinni lágmarksupphæð lausafjár sem myndar stofn sem nýta má til að auka hlutafé Arion til að bregðast við því ef bankinn mætir verulegu andstreymi í rekstri. Var fjárhæð þessi metin af Arion að undirlagi Fjármálaeftirlitsins á grundvelli samræmdrar aðferðafræði sem þróuð var innan ramma úttektar Fjármáleftirlitsins á nýju bönkunum í maí 2009.

Eignarhald bankans skal vera í höndum sérstaks dótturfélags Kaupþings (Kaupskila), sem lýtur stjórn sem er að meirihluta skipuð stjórnarmönnum óháðum Kaupþingi, stórum kröfuhöfum og Arion sjálfum. Er skilanefnd Kaupþings gefinn kostur á að tilnefna einn fulltrúa sinn í þriggja manna stjórn Kaupskila, en hinir tveir, þ.m.t. stjórnarformaður, skulu vera óháðir. Útnefning allra stjórnarmanna eignarhaldsfélagsins er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og skulu þeir uppfylla kröfur þess, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi.

Stjórn Kaupskila fer með atkvæðisrétt þann sem Kaupþing öðlast í Arion og  útnefnir stjórnarmenn bankans. Kveða skilyrði Fjármálaeftirlitsins einnig á um það að af stjórnarmönnum bankans sjálfs skuli skilanefnd aðeins hafa einn fulltrúa, en aðrir skuli vera óháðir, þ.m.t. stjórnarformaður. Með því er átt við að þeir starfi hvorki í umboði einstakra eigenda eða kröfuhafa, né séu bundnir þeim eða bankanum sjálfum nokkrum hagsmunatengslum. Í sérstökum umboðssamningi milli Kaupskila og Kaupþings tekst Kaupþing á hendur að virða sjálfstæði stjórnar fyrrnefnda félagsins og skyldur hennar til að stuðla að heilbrigðum og traustum rekstri Arion án utanaðkomandi íhlutunar. Er stjórn Kaupskila gert skylt að gefa skýrslu um framkvæmd þessarar stefnu til Fjármálaeftirlitsins ársfjórðungslega.

Til að greiða fyrir eftirliti er Kaupskilum gert að færa eignarhald á öllum dótturfélögum sem hafa með höndum fjármála- og vátryggingarstarfsemi í eitt móðurfélag ef þess gerist þörf að mati Fjármálaeftirlitsins.

Stefnumiðum eigenda eru settar skorður með því að áskilja tilteknar kvaðir á viðskipti við tengda aðila, arðgreiðslur út úr Arion og sölu hluta í Arion næstu  þrjú ár. Kaupþingi ber þannig að tilkynna fyrirfram um fyrirhuguð eigendaskipti hluta í Arion banka eða Kaupskilum til Fjármálaeftirlitsins. Þegar slík tilkynning berst mun fara fram endurnýjað hæfismat á væntanlegum eigendum af hálfu Fjármálaeftirlitsins, svo fremi eignarhaldið feli í sér áhrif á stjórn bankans.

Áður hafði Fjármálaeftirlitið kynnt fyrir nýju bönkunum þremur eftirlitskröfur sínar. Þær byggjast á gagngerri úttekt á rekstrarhæfni þeirra miðað við eignasamsetningu, fjármögnun og líklegar efnahagshorfur, sem gerð var í maí sl. Fela kröfurnar m.a. í sér 16% eiginfjárlágmark í stað 8% áður, viðbúnað til að standast nýtt álagspróf sem miðast við óhagstæða efnahagsþróun um lengri tíma en almennt er vænst og strangari kröfur til lausafjárstyrks en verið hefur. Auk þess er það gert að skilyrði fyrir starfsleyfi  nýju bankanna að þeir hrindi í framkvæmd ítarlegri áætlun um endurbætur á áhættustýringu og stjórnarháttum.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica