Fréttir


Leiðrétt frétt: Hagnaður af skaðatryggingarekstri innlendra vátryggingafélaga annarra en Viðlagatryggingar rúmar 819 milljónir króna á árinu 2008

7.5.2009

Hagnaður innlendra vátryggingafélaga af skaðatryggingarekstri (vátryggingarekstri öðrum en líftryggingarekstri) nam um 819 m.kr á árinu 2008. Hagnaður félaganna af þessum rekstri nam 2,7 ma.kr. árið 2007. Sé afkoma Viðlagatryggingar Íslands vegna jarðskjálftans á Suðurlandi tekin með nemur samanlagt tap vátryggingafélaga af skaðatryggingarekstri 3,9 ma.kr.

Í heild námu iðgjöld ársins af skaðatryggingum 37,3 ma.kr. samanborið við 32,9 ma.kr. árið áður. Tjón ársins án Viðlagatryggingar námu 30,8 ma.kr. en voru 25,9 ma.kr. árið áður. Heildartjón með viðlagatjónum námu 37,3 ma.kr. Rekstrarkostnaður vegna skaðatrygginga nam 7 ma.kr. samanborið við 6,2 ma.kr. árið áður og fjárfestingartekjur námu 5,7 ma.kr., nánast sama og þær voru árið áður.

Hagnaður var mestur af lögboðnum ökutækjatryggingum, 2,4 ma.kr., samanborið við 2,8 ma.kr. árið áður. Eins og undanfarin ár voru frjálsar ökutækjatryggingar reknar með tapi. Samanlagt tap var 1 ma.kr., samanborið við 0,5 ma.kr. árið 2007. Í heild námu iðgjöld ársins af ökutækjatryggingum 18,8 ma.kr., en voru 16,6 ma.kr. árið 2007 sem er 13,3% aukning. Tjón ársins námu 16,5 ma.kr. á árinu samanborið við 14,4 ma.kr. á árinu 2007 sem er 15,4% aukning.

Aðrar vátryggingagreinar sem voru reknar með hagnaði á árinu voru sjótryggingar (187 m.kr.), flugtryggingar (229 þús.kr.), farmtryggingar (142 m.kr.) og greiðslu- og efnavátryggingar (137 m.kr.).

Aðrar vátryggingagreinar sem voru reknar með tapi á árinu voru eignatryggingar aðrar en viðlagatryggingar (77 m.kr.), ábyrgðartryggingar (327 m.kr.), slysa- og sjúkratryggingar (78 m.kr.) og endurtryggingar (465 m.kr.)

Bókfærð iðgjöld af líftryggingum jukust um 1,9% á milli ára og námu 3,1 ma.kr.

Nánari upplýsingar um afkomu vátryggingagreina má sjá í meðfylgjandi töflu.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is , s. 525 2700 eða gsm 840 3861

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica