Fréttir


Kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins fyrir regluverði færeyskra útgefenda fjármálagerninga

5.5.2009

Þann 28. apríl sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir regluverði færeyskra útgefenda fjármálagerninga. Um var að ræða sambærilegan kynningarfund og haldinn var fyrir regluverði íslenskra útgefenda í nóvember sl. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkur fundur er haldinn fyrir færeyska regluverði.

Tilgangur fundarins var að fræða regluverði um helstu atriði sem lúta að regluvörslu og upp geta komið í störfum þeirra. Jafnframt var hvatt til fyrirbyggjandi aðgerða með því að gera verkferla til þess að minnka líkur á brotum á innherjareglum. Á fundinum var m.a. fjallað um skilgreiningar á innherjum, framkvæmd viðskipta innherja, meðferð og frestun innherjaupplýsinga, gerð og viðhald innherjalista og viðurlög við brotum á reglum um innherjaviðskipti. Jafnframt var fjallað um upplýsingaskyldu útgefenda fjármálagerninga, markaðsmisnotkun og viðurlög tengd því.

Fjármálaeftirlitið hefur lagt áherslu á góð og jákvæð samskipti við regluverði útgefenda fjármálagerninga og var fundurinn þáttur í því að styrkja þau samskipti.

Kynningar af fundinum:
Viðskipti innherja, innherjalistar og hlutverk regluvarðar
Upplýsingaskylda útgefanda
Viðurlagamál

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is , s. 525 2700 eða gsm 840 3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica