Fréttir


Kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins fyrir regluverði útgefenda verðbréfa

20.11.2008

Þann 18. nóvember sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir regluverði útgefenda verðbréfa. Fundurinn var vel sóttur en um 50 regluverðir og staðgenglar þeirra mættu til fundarins.

Tilgangur fundarins var að fræða regluverði um helstu atriði sem lúta að regluvörslu og upp geta komið í störfum þeirra. Jafnframt var hvatt til fyrirbyggjandi aðgerða með gerð verkferla til þess að minnka líkur á brotum á innherjareglum. Á fundinum var  m.a. fjallað um skilgreiningar á innherjum, framkvæmd við viðskipti innherja, meðferð og frestun innherjaupplýsinga, gerð og viðhald innherjalista og viðurlög við brotum á reglum um innherjaviðskipti. Jafnframt var fjallað um markaðsmisnotkun og viðurlög tengd því.

Fjármálaeftirlitið hefur lagt áherslu á góð og jákvæð samskipti við regluverði útgefenda verðbréfa og var fundurinn þáttur í því að styrkja þau samskipti. Fjármálaeftirlitið telur mikilvægt að regluverðir séu vel upplýstir um skyldur þeirra í starfi auk þess að rík meðvitund sé um skyldur innherja.

Hlutverk regluvarðar er m.a. að eiga samskipti við eftirlitsaðila, kynna starfsmönnum og innherjum lög og reglur, útbúa innherjalista og viðhalda þeim, auk þess að afgreiða beiðnir innherja um viðskipti með hluti í útgefandanum.

Fjármálaeftirlitið er regluvörðum til ráðgjafar og leiðbeiningar vegna tiltekinna álitaefna en leggur engu að síður áherslu á að regluverðir séu sjálfstæðir í störfum sínum. Mikilvægt er að regluverðir njóti stuðnings yfirstjórnenda og hafi aðgang að öllum þeim gögnum sem þeir þarfnast í störfum sínum.


Kynningar af fundinum:

Viðskipti innherja og viðurlög
Innherjalistar, viðskipti innherja og regluverðir
Markaðsmisnotkun


Nánari upplýsingar veitir Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, S: 525-2700 og GSM: 869-2733.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica