Fréttir


Nýr Landsbanki Íslands stofnaður um innlenda bankastarfsemi Landsbanka Íslands hf.

9.10.2008

Nýi  bankinn tekur yfir innlendar eignir Landsbankans til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Landsbankans er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Landsbankans verða opin.

  • Nýi  bankinn tekur yfir innlendar eignir Landsbankans til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi
  • Alþjóðleg starfsemi Landsbankans er skilin frá
  • Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Landsbankans verða opin

Þann 7. október 2008 ákvað Fjármálaeftirlitið að nýta heimild Alþingis með vísan til 100 gr. a  laga nr. 161/2002, sbr. lög nr. 125/2008, vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, til að taka yfir rekstur Landsbanka Íslands hf.

Fjármálaeftirlitið hefur nú tekið ákvörðun um  að flytja hluta af starfsemi Landsbanka Íslands hf. til nýs banka sem stofnaður hefur verið og er að fullu í eigu íslenska ríkisins. Með ákvörðuninni er tryggð áframhaldandi bankastarfsemi fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. 

Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

 Á næstu 30 dögum mun fara fram mat óháðs aðila á verðgildi eigna og skulda og lokauppgjör.  Eigið fé nýja bankans verður 200 milljarðar króna sem ríkið leggur fram.  Stærð efnahagsreiknings hins nýja banka verður um 2.300 milljarðar króna.

Sigríður Elín Sigfúsdóttir hefur verið ráðin bankastjóri.  Lykilstjórnendur hins nýja banka munu sjá um kynningu á starfsemi hans en heiti hans verður Nýi Landsbanki Íslands hf.

Ákvörðunina má lesa hér.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veita Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, S. 525-2700 eða GSM: 869-2733 og Úrsúla Ingvarsdóttir, ursula@fme.is, S: 5252700 eða GSM: 821-4860.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica