Fréttir


Fjármálaeftirlitið takmarkar skortsölu

7.10.2008

Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja á markaði og til þess að stuðla að og viðhalda fjármálastöðugleika hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að skilgreina skortsölu hlutabréfa tiltekinna útgefenda sem hegðun andstæða viðurkenndri markaðsframkvæmd. Aðili sem hegðar sér andstætt viðurkenndri markaðsframkvæmd kann að vera fundinn sekur um markaðsmisnotkun, skv. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Það er ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að frá og með 7. október 2008 til og með 16. janúar 2009 er óheimilt að skortselja hlutabréf Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf., Landsbanka Íslands hf., Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf., Spron hf. og Exista hf., sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði á Íslandi, nema seljandi hafi bréfin í sinni vörslu þegar sölutilboð er lagt fram, enda tilkynni viðkomandi án tafar um viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins.

Bannið tekur einnig til allra annarra fjármálagerninga sem hafa sama tilgang og sömu efnahagslegu áhættu og skortsala tilgreindra hlutabréfa og til skortsölu á öðrum fjármálagerningum þar sem verðmæti þeirra ræðst af verði hlutabréfa tilgreindra útgefenda.

Ákvörðunina er hægt að lesa hér.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veita Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, S. 525-2700 eða GSM: 869-2733 og Úrsúla Ingvarsdóttir, ursula@fme.is, S: 5252700 eða GSM: 821-4860.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica