Fréttir


Frétt frá Fjármálaeftirlitinu

18.9.2008

Vegna frétta af gjaldþroti bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers og mögulegra áhrifa á fjármálakerfi víða um heim, þ.m.t. á Íslandi vill Fjármálaeftirlitið upplýsa um eftirfarandi:

Samkvæmt upplýsingum sem Fjármálaeftirlitið hefur aflað frá viðskiptabönkunum er samtala brúttó krafna þeirra á Lehman Brothers og tengda aðila samtals 182,6 milljónir evra eða sem samsvarar 1,8% af heildareiginfjárgrunni bankanna. Um er að ræða nánast eingöngu skuldabréfakröfur eða ígildi þeirra (senior debt) en ekki áhættu í formi hlutabréfa eða víkjandi krafna. Þá er vakin athygli á því að kröfurnar eru að nokkru leyti á félög sem ekki eru í greiðslustöðvun en tengjast Lehman Brothers. Vænta má þess að hluti framangreindra krafna innheimtist.

Með hliðsjón af lágu hlutfalli af eiginfjárgrunni teljast þessar áhættur ekki áhyggjuefni fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Íslenskir bankar hafa ekki sérstöðu í þessu sambandi þar sem flestir stærri erlendir bankar hafa upplýst um kröfur á Lehman Brother.

Nánari upplýsingar veitir Íris Björk Hreinsdóttir í síma 869 2733.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica