Fréttir


FME gerir ekki athugasemdir við óbeint eignarhald NASDAQ á OMX Nordic Exchange

28.9.2007

Þann 27. september sl. tilkynnti Fjármálaeftirlitið kauphallarfyrirtækinu Nasdaq að eftirlitið geri ekki athugasemdir við óbeint eignarhald Nasdaq Stock Market á OMX Nordic Exchange á Íslandi og Verðbréfaskráningu Íslands.  Á grundvelli 6. gr. laga nr. 34/1998 um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða sendi Nasdaq tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins í tilefni af kaupum þess á virkum eignarhlut í OMX AB en OMX Nordic Exchange er í fullri eigu OMX AB.

Sænska Fjármálaeftirlitið tilkynnti sama dag að það teldi Nasdaq hæfan aðila til þess að fara með virkan eignarhlut í OMX AB.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica