Fréttir


Vanskilatölur innlánsstofnanna í árslok 2006

17.4.2007

Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnanna hefur lækkað úr tæplega 0,7 í lok 3. ársfjórðungs 2006 í rúmlega 0,5 í árslok 2006. Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við árslok 2006 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.
Yfirlitið sýnir að hlutfall vanskila af útlánum hefur lækkað úr tæplega 0,7% í lok 3. ársfjórðungs 2006 í rúmlega 0,5% í árslok 2006. Í árslok 2005 var hlutfallið 0,6%. Vanskilahlutfallið hefur ekki verið lægra á síðustu 6 árum. Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar undanfarin ár á hlutfallstölurnar. Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 0,8% og 1,3% af útlánum og hafa þau ekki verið lægri á undanförnum árum sem. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum árum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu.

Vanskilahlutfall fyrirtækja lækkaði úr 0,6% í lok 3. ársfjórðungs 2006 í tæplega 0,5% í árslok 2006. Í árslok 2005 var hlutfallið 0,5%. Vanskilahlutföll fyrirtækja miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 0,7% og tæplega 1,2% í árslok 2006 sem er með því lægsta sem verið hefur á undanförnum árum. Vanskilahlutfall einstaklinga lækkaði úr 1,0% í lok 3. ársfjórðungs 2006 í 0,8% í árslok 2006. Í árslok 2005 var hlutfallið 1,0%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 1,1% og 1,8% í árslok 2006 og eru það lægri hlutföll en verið hafa á undanförnum árum.

Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Ragnar Hafliðason, aðstoðarforstjóri FME segir vanskil útlána fyrirtækja og einstaklinga hafa verið með lægsta móti í lok árs 2006. ,,Ein skýring á lágum vanskilum er aukin hlutdeild lána með veði í íbúðarhúsnæði á síðustu misserum en reynslan sýnir að þeim fylgja minni vanskil og tapshætta. Að því leytinu er útlánaáhætta banka og sparisjóða dreifðari en áður var”, segir Ragnar.

Tölurnar má nálgast hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica