Fréttir


FME óskar eftir þátttöku vátryggingafélaga í könnun áhrifa Solvency II (QIS)

13.4.2007

Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á vátryggingasviði (CEIOPS) stendur nú að þriðju umferð könnunar á mögulegum áhrifum nýs gjaldþols- og eftirlitsstaðals (Solvency II) sem unnið er að á EES svæðinu. Könnunin gengur undir nafninu QIS (Quantitative Impact Study).
Fjármálaeftirlitið tekur virkan þátt í undirbúningi Solvency II og leggur áherslu á góða þátttöku íslenskra vátryggingafélaga. Þannig aukast líkur á að Solvency II taki tillit til íslenskra aðstæðna, sem felast t.d. í því að líftryggingafélög hér á landi eru mjög smá í samanburði við líftryggingafélög nágrannalanda okkar. Jafnframt geta vátryggingafélög öðlast aukna þekkingu á nauðsynlegum undirbúningi vegna Solvency II auk þess sem Fjármálaeftirlitið fær aukna yfirsýn yfir stöðu íslenska vátryggingamarkaðarins sem nýtist í samstarfi vegna Solvency II. ESB og CEIOPS leggja sérstaka áherslu á að auka þátttöku smærri félaga í QIS3 svo að niðurstöðurnar endurspegli fjölbreytileika vátryggingafélaganna.

Fyrsta umferð QIS (QIS1) árið 2005, fólst í að reikna vátryggingaskuld með tilteknum öryggismörkum og fá mynd af því hversu nothæfar þær aðferðir væru sem CEIOPS mælti með í ráðgjöf sinni. Í kjölfarið gaf CEIOPS út skýrslu um niðurstöðurnar.

Í annarri umferð QIS (QIS2) árið 2006, voru áhrif á fleiri þætti efnahagsreiknings könnuð. Þannig bættust við útreikningar á svonefndri gjaldþolskröfu eða SCR (Solvency Capital Requirement) og lágmarksgjaldþolskröfu eða MCR (Minimum Capital Requirement), samkvæmt þeim leiðbeiningum sem fyrir lágu.  Í kjölfarið gaf CEIOPS út skýrslu um niðurstöðurnar.

Í QIS3 verða prófuð áhrifin af tilteknum aðferðum útreiknings á SCR og MCR og því er mikilvægt að áhrif á félög af öllum stærðum og gerðum verði könnuð.
CEIOPS hefur  sett upp upplýsingasíðu vegna QIS3. Þar er hægt að sækja gögn og leiðbeiningar.
Gögnum skal skilað til Fjármálaeftirlitsins eigi síðar en 2. júlí nk. 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica