Fréttir


Vegna frétta um stöðu European Risk Insurance Company (ERIC)

6.2.2014

Vefmiðlar í Bretlandi hafa í morgun fjallað um stöðu European Risk Insurance Company (ERIC), en það er íslenskt vátryggingafélag sem stundar starfsemi erlendis, og sagt að félagið hafi hætt sölu nýtrygginga.

Fjármálaeftirlitið telur rétt að fram komi að ákvörðun um stöðvun á sölu nýtrygginga  ERIC var tekin á stjórnarfundi félagsins þann 4. febrúar síðastliðinn og tilkynnt samstarfsaðilum í gær.

Fjármálaeftirlitið fylgist með starfsemi og stöðu ERIC og á í samskiptum við félagið í samræmi við lög.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica