Fréttir


Samruni Sparisjóðs Ólafsfjarðar við Arion banka hf.

17.9.2012

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 14. september 2012 samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar við Arion banka hf. á grundvelli 1. mgr 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Arion banki hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Ólafsfjarðar og verða félögin sameinuð undir nafni Arion banka hf.

Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica