Fréttir


Unnur Gunnarsdóttir ráðin forstjóri Fjármálaeftirlitsins

5.7.2012

Unnur Gunnarsdóttir, sem verið hefur settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins frá 1. mars síðastliðnum, hefur verið ráðin forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Unnur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í lögum bæði í Englandi og Kanada. Hún gegndi áður starfi yfirlögfræðings Fjármálaeftirlitsins. 

Unnur hefur víðtæka reynslu af störfum við fjármálatengd verkefni, opinbera stjórnsýslu og í dómskerfinu. Hún starfaði meðal annars í sjö ár hjá bankaeftirliti Seðlabanka Íslands og í fimm ár sem sérfræðingur í fjármálaþjónustu hjá EFTA skrifstofunni í Brussel. Þá var hún framkvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar í tvö ár. Innan opinberrar stjórnsýslu hefur Unnur meðal annars reynslu sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í sjö ár og sem settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Unnur var valin úr hópi tíu umsækjenda að undangengnu ítarlegu ráðningarferli. Ferlinu er lýst í Skýrslu stjórnar Fjármálaeftirlitsins um ráðningu forstjóra sem birt hefur verið á vef Fjármálaeftirlitsins. Í niðurlagi skýrslunnar segir meðal annars:

„Unnur hefur sterka sýn á framtíð eftirlitsins, þar sem hún leggur áherslu á vernd almannahagsmuna, virkt starf gegn brotum, greiningu og áhættumat, uppbyggingu trausts og að Fjármálaeftirlitið taki alvarlega vaxandi kröfur til þess um að vinna að fjármálastöðugleika.“

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica