Fréttir


Kynningarfundur fyrir starfsmenn fyrirtækja sem hafa heimild til að veita þjónustu í verðbréfaviðskiptum

14.2.2019

Fjármálaeftirlitið hélt í gær kynningarfund fyrir starfsmenn fjármálafyrirtækja sem hafa heimild til að veita þjónustu í verðbréfaviðskiptum. Á fundinum voru haldnar kynningar á völdum atriðum úr tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/65/ESB (MiFID II) og reglugerð nr. 600/2014/ESB (MiFIR) til að vekja athygli ofangreindra aðila á þeim nýjungum sem kunna að hafa áhrif á starfsemi þeirra. Áætlað er að MiFID II og MiFIR verði innleiddar í íslensk lög á árinu 2019 og bendir Fjármálaeftirlitið á að hægt er að senda fyrirspurnir um MiFID II og MiFIR á netfangið: mifid2@fme.is

Meðfylgjandi eru skjöl með glærukynningum sem voru fluttar á fundinum.

1 – (PDF skjal) Gagnsæi og innmiðlun
2 – (PDF skjal) Hvatagreiðslur
3 – (PDF skjal) Upplýsingagjöf um kostnað og gjöld
4 – (PDF skjal) Mat á hæfi og tilhlýðileika
5 – (PDF skjal) Product Governance
6 – (PDF skjal) Þekking og hæfni

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica