Fréttir


Fjármálaeftirlitið veitir Fossum mörkuðum hf. aukið starfsleyfi

20.11.2015

Fjármálaeftirlitið veitti Fossum mörkuðum hf., kt. 660907-0250, aukið starfsleyfi hinn 17. nóvember 2015 á grundvelli laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Fossum mörkuðum hf. var veitt starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki hinn 23. júní 2015 á grundvelli sömu laga. Starfsleyfi Fossa markaða hf. hefur verið endurútgefið með tilliti til viðbótarstarfsheimilda sem felast í umsjón með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, sbr. f-lið 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002.

Starfsleyfi Fossa markaða hf. tekur nú til starfsheimilda skv. a–b-, d- og f-liðum 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002, sbr. a–b-, e- og g-liði 1. tölul. 1. mgr. 25. gr., og viðbótarþjónustu skv. a–b-, e- og g-liðum 2. tölul. 1. mgr. 25. gr. sömu laga.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica