Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið BLM Investment ehf. og tengda aðila hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Lýsingu hf.

8.1.2016

Hinn 30. desember sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að BLM Investment ehf., kt. 460813-1820, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf. sem nemur allt að 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki (fftl.) í gegnum eignarhald sitt í móðurfélagi Lýsingar hf, Klakka ehf. Auk þess hefur Fjármálaeftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að móðurfélag BLM Investment ehf., Burlington Loan Management Ltd. sem átti fyrir 13,2% hlut í Klakka ehf., auk tengdra aðila, Deutsche International Finance (Ireland) Limited og Davidson Kempner Capital Management LP, séu hæf til að fara með allt að 50% virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica