Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. og Vátryggingafélag Íslands hf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í Virðingu hf. og Rekstrarfélagi Virðingar hf.

19.9.2017

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, sé hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Virðingu hf. sem nemur 100%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Kviku banka hf. hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Rekstrarfélagi Virðingar hf., sem nemur 100%, með óbeinni hlutdeild í gegnum eignarhald í Virðingu hf.

Þá hefur Fjármálaeftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689-2009, sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Virðingu hf. og Rekstrarfélagi Virðingar hf., sem nemur allt að 33% með óbeinni hlutdeild í gegnum eignarhald á Kviku, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica