Fréttir


Fjármálaeftirlitið birtir áætlun um setningu reglna og útgáfu leiðbeinandi tilmæla 2017 – 2018

3.3.2017

Til að auka upplýsingagjöf til eftirlitsskyldra aðila mun Fjármálaeftirlitið framvegis taka upp þá nýjung að birta áætlun um setningu reglna og leiðbeinandi tilmæla en áætlunin gildir til næstu tveggja ára. Áætlunin hefur að geyma heiti allra reglna og leiðbeinandi tilmæla sem unnin verða á þessu tímabili, flokkað eftir mörkuðum og með áætlaða tímasetningu um það hvenær viðkomandi verkefni lýkur. Einnig eru í áætluninni stuttar skýringar/athugasemdir til að veita viðbótarupplýsingar um uppruna einstakra verkefna.

Í áætlun Fjármálaeftirlitsins felst ekki skuldbinding um að reglur eða leiðbeinandi tilmæli verði tilbúin á áætluðum tíma. Þess í stað er með upplýsingunum leitast við að undirbúa eftirlitsskylda aðila fyrir væntanlegar breytingar.

Áætlun Fjármálaeftirlitsins verður endurskoðuð ársfjórðungslega sem getur leitt til þess að við bætast ný verkefni eða að forgangsröðun fyrirliggjandi verkefna breytist. Því ber ekki að líta á áætlunina sem tæmandi yfirlit yfir fyrirhuguð verkefni vegna setningar reglna og útgáfu leiðbeinandi tilmæla.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica