Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2016 er í dag

1.6.2016

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins er haldinn í Salnum í Kópavogi í dag 1. júní og hefst fundurinn klukkan 15:00 síðdegis. Á fundinum er Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2016 kynnt.

Ásta Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri ávarpa fundinn. Þá talar einnig Sven Erik Svedman, forseti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, sem sérstakur gestur.

Til fundarins er meðal annars boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni, auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2016

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica