Hinn 10. júlí 2019 gerðu Fjármálaeftirlitið og Brim hf. (áður HB Grandi hf.), hér eftir nefndur málsaðili, með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið hefur birt gagnatöflur íslenskra vátryggingafélaga á samandregnu formi fyrir annan ársfjórðung 2019. Gagnatöflurnar byggja á ársfjórðungslegum gagnaskilum vátryggingafélaga á móðurfélagsgrunni. Hér er einnig samantekt um þróun helstu stærða úr rekstri skaðatryggingafélaga og líftryggingafélaga á öðrum ársfjórðungi þessa árs.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Equitable Life Assurance Society til Utmost Life and Pensions Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 29. júlí 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraNýtt tölublað Fjármála, vefrits Fjármálaeftirlitsins er komið út. Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, skrifar greinina: Nýr kafli í sögu Fjármálaeftirlitsins hefst senn. Staða íslensku viðskiptabankanna og helstu áskoranir framundan eru til umfjöllunar í grein Finns Sveinbjörnssonar, framkvæmdastjóri bankasviðs, Elmars Ásbjörnssonar, forstöðumanns áhættugreiningar á bankasviði og Skúla Magnússonar, sérfræðings í fjárhagslegu eftirliti. Þá fjallar Bryndís Ásbjarnardóttir, forstöðumaður þjóðhagsvarúðar, um húsnæðismarkaðinn og fjármálastöðugleika og Jón Ævar Pálmason, sérfræðingur í áhættugreiningu, skrifar um meðferð skuldabréfa í ársreikningum lífeyrissjóða.
Lesa meira