Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Leiðbeinandi tilmæli

Málsnúmer 1/2013
Heiti Leiðbeinandi tilmæli um áhættustýringu (eftirlitskerfi) samtryggingadeilda lífeyrissjóða - [Ekki í gildi]
Dagsetning 9/1/2013
Starfsemi
  • Lífeyrissjóðir
Reifun

Fjármálaeftirlitið setur leiðbeinandi tilmæli um áhættustýringu (eftirlitskerfi) samtryggingadeilda lífeyrissjóða. Tilmælin eru sett til leiðbeiningar og nánari skýringar fyrir samtryggingadeildir lífeyrissjóða varðandi þær lágmarkskröfur sem lög og reglur kveða á um í tengslum við áhættustýringu samtryggingadeilda lífeyrissjóða án þess að um tæmandi skýringar séu að ræða.

Með fullnægjandi áhættustýringu og innra eftirliti hjá lífeyrissjóðum aukast líkur á að starfsemi og tryggingafræðileg staða þeirra sé í ásættanlegu horfi með hliðsjón af hagsmunum sjóðfélaga. Á þetta bæði við um sjóði með og án ábyrgðar launagreiðenda.

Eftirfarandi leiðbeinandi tilmæli varða heildar áhættustýringu (eftirlitskerfi) fyrir samtryggingadeildir lífeyrissjóða. Taka þarf tillit til stærðar hvers sjóðs, mannafla og einkenna við mat á hæfilegu umfangi áhættustýringar (e. proportionality). Í tilmælunum er lögð áhersla á ábyrgð og skyldur stjórna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða. Meðal annars hefur verið stuðst við gögn og tilmæli frá CEIOPS, OECD/IOPS og GARP.

Leiðbeinandi tilmæli þessi eru sett í framhaldi af endurskoðun á leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2011, sem var framkvæmd á sama tíma og leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2013 um áhættustýringu (eftirlitskerfi) vörsluaðila séreignarsparnaðar voru unnin. Við gildistöku þessara leiðbeinandi tilmæla falla tilmæli nr. 4/2011 úr gildi.

Skjöl Leidbeinandi_tilmaeli_2013_1-ekki-i-gildi.pdf

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica