Áætlun 2019-2020
Áætlun Fjármálaeftirlitsins um setningu reglna og leiðbeinandi tilmæla er til tveggja ára. Áætlunin hefur að geyma heiti allra reglna og leiðbeinandi tilmæla sem gert er ráð fyrir að verði unnin á þessu tímabili, flokkað eftir mörkuðum og með áætlaða tímasetningu um það hvenær viðkomandi verkefni lýkur. Einnig eru í áætluninni stuttar skýringar/athugasemdir til að veita viðbótarupplýsingar um uppruna einstakra verkefna.
Í
áætlun Fjármálaeftirlitsins felst ekki skuldbinding um að reglur eða
leiðbeinandi tilmæli verði tilbúin á áætluðum tíma. Þess í stað er með
upplýsingunum leitast við að undirbúa eftirlitsskylda aðila fyrir væntanlegar
breytingar. Áætlunin verður endurskoðuð ársfjórðungslega sem getur leitt til
þess að við bætast ný verkefni eða að forgangsröðun fyrirliggjandi verkefna
breytist. Því ber ekki að líta á áætlunina sem tæmandi yfirlit yfir fyrirhuguð
verkefni vegna setningar reglna og útgáfu leiðbeinandi tilmæla.
Áætlun FME 2019 október