Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Lög, reglur og tilmæli

Seðlabanka Íslands ber að fylgjast með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir og reglur sem í gildi eru hverju sinni. Hér má finna öll lög, reglugerðir og reglur sem varða fjármálaþjónustu auk leiðbeinandi tilmæla, umræðuskjala og túlkana sem stofnunin hefur sett eða gefið út. Til að finna skjal má slá inn leitarorð, svo sem heiti eða númer þess. Einnig er hægt að afmarka leitarskilyrði eftir ártali, tegund skjals og starfsemi eftirlitsskyldra aðila. Þá er hægt að fletta upp þeim réttarheimildum sem felldar hafa verið úr gildi.


Réttarheimildir

Lög

Hér finna lög sem gilda um starfsemi eftirlitsskyldra aðila, svo sem banka, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Þá er hér einnig finna lög sem varða verðbréfamarkaðinn og starfsemi Seðlabankans.

Reglugerðir

Ráðuneyti sem fara með stjórnarmálefni sem tengjast fjármálaþjónustu setja reglugerðir sem útfæra nánar ákvæði laga. Hér er finna þær reglugerðir sem gilda um starfsemi eftirlitsskyldra aðila og fjármálamarkaðinn.

Reglur

Seðlabanki Íslands setur reglur sem útfæra nánar ákvæði laga. Hér er finna þær reglur sem gilda um starfsemi eftirlitsskyldra aðila og fjármálamarkaðinn.

Leiðbeinandi tilmæli

Leiðbeinandi tilmæli veita nánari skýringar á ákvæðum laga og reglna, og eru til leiðbeiningar um hvað telst til heilbrigðra og eðlilegra viðskiptahátta. Tilmælin geta ennfremur orðið grundvöllur krafna Seðlabankans um úrbætur með vísan til sérlaga um starfsleyfisskylda starfsemi og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Túlkanir

Fjármálaeftirlitið getur gefið út túlkanir á ákvæðum laga og stjórnvaldsfyrirmæla til leiðbeiningar fyrir eftirlitsskylda aðila. Túlkanir eru gefnar út eftir því sem tilefni er til og veita fyllri skýringar á mikilvægum atriðum í réttarheimildum sem gilda um starfsemi eftirlitsskyldra aðila og fjármálamarkaðinn.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica