Skrá yfir verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði

Samkvæmt lögum um verðbréfasjóði sem og sérhæfða sjóði, teljast þeir starfsleyfisskyldir og því óheimilt að markaðssetja þá fyrir almenna fjárfesta nema að fenginni staðfestingu Seðlabanka Íslands. Hér má finna lista yfir þá sjóði sem hafa fengið tilskilin leyfi.

Verðbréfasjóðir

Verðbréfasjóðir eru sjóðir um sameiginlega fjárfestingu, reknir af rekstrarfélagi sem hefur hlotið starfsleyfi sem slíkt. Um starfsemi verðbréfasjóða, þar með talið innlausnarskyldu og fjárfestingarheimildir, gilda lög nr. 116/2021, um verðbréfasjóði. Í 30. grein fyrrnefndra laga kveður jafnframt á um að Seðlabankinn skuli birta opinberlega skrá yfir þá verðbréfasjóði sem hann hefur staðfest.

Sérhæfðir sjóðir

Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta eru sjóðir um sameiginlega fjárfestingu, og um þá gilda lög nr. 45/2020 , um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Slíkir sjóðir skulu reknir af félagi sem hefur hlotið leyfi til slíks reksturs og til að markaðssetja hlutdeildarskírteini sín til almennings. Samkvæmt 83. grein sömu laga, segir jafnframt að Seðlabankinn skuli birta opinberlega skrá yfir þá sjóði sem hann hefur staðfest.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica