Starfsemi án leyfis eða skráningar

Komist Seðlabanki Íslands að því að aðili hafi stundað starfsemi án leyfis eða skráningar, getur stofnunin beitt ýmsum úrræðum, s.s. að krefjast þess að starfsemin verði stöðvuð, birt nöfn aðila sem taldir eru bjóða þjónustu án tilskilinna leyfa og beitt aðila stjórnvaldssektum.

Starfsemi án leyfis

Seðlabankinn getur beitt mismunandi úrræðum eftir tegund starfsemi, nánari upplýsingar:

Starfsemi Upplýsingar um úrræði
Fjármálafyrirtæki (viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki og verðbréfafyrirtæki)XIII og XIV. kafli laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki og 8. og 9. þætti laga nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga.
VátryggingafélögVII. og XXV. kafli laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
Vátryggingamiðlarar og vátryggingaumboðsmennXI og XIII. kafli laga nr. 62/2019, um dreifingu vátrygginga.
GreiðslustofnanirVII. kafli laga nr. 114/2021, um greiðsluþjónustu.
RafeyrisfyrirtækiIV. kafla laga nr. 17/2013, um meðferð og útgáfu rafeyris.
Lífeyrissjóðir55. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Innheimtuaðilar16. og 18. gr. innheimtulaga nr. 95/2008.
Leyfisskyldir rekstraraðilar sérhæfðra sjóðaXI. kafli laga nr. 45/2020, rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Rekstrarfélög verðbréfasjóðaXIII. kafli laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði.

Starfsemi án skráningar

Seðlabankinn getur beitt mismunandi úrræðum eftir tegund starfsemi, nánari upplýsingar:

StarfsemiUpplýsingar um úrræði 
Einstaklingar og lögaðilar sem starfrækja gjaldeyrisskiptastöð [1]XII. kafli laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Þjónustuveitendur sýndareignaXII. kafli laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
LánveitendurXVI. kafli laga nr. 118/2016, um fasteignalán til neytenda.
LánamiðlararXVI. kafli laga nr. 118/2016, um fasteignalán til neytenda.
Skráningarskyldir rekstraraðilar sérhæfðra sjóðaXI. kafli laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Ábending um starfsemi án leyfis eða skráningar

Vakni grunur um starfsemi án leyfis eða skráningar má senda inn nafnlausa ábendingu. Eftirfarandi eru leiðir til þess:

  • Hægt er að senda ábendingu með því að fylla inn form og velja „Starfsemi án leyfis/skráningar“ í „Tegund“ reitnum.
  • Með tölvupósti á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is
  • Með bréfpósti á heimilisfangið Kalkofnsvegi 1, 101 Reykjavík, sem er merktur „Starfsemi án leyfis/skráningar“

Sem fyrr segir þarf sá sem sendir ábendingu ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

 


[1] Athuga skal að þetta á eingöngu við um gjaldeyrisskiptastöðvar sem falla ekki undir eftirfarandi: Gjaldeyrisskipti eru hliðarstarfsemi sem tengist með beinum hætti meginstarfsemi aðilans og er aðeins veitt viðskiptavinum aðilans, heildarvelta af gjaldeyrisskiptum nemur minna en 5 m. kr. á ári eða gjaldeyrisskipti fyrir einstakan viðskiptavin fara ekki yfir 100 þús. kr., hvort sem viðskiptin fara fram í einni færslu eða fleiri færslum sem virðast tengjast hver annarri.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica