Miðlægt geymslukerfi

Seðlabanki Íslands skal varðveita upplýsingar sem birtar eru opinberlega í samræmi við ákvæði laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 sbr. 36 gr. laganna. Skulu upplýsingarnar varðveittar með rafrænum hætti í miðlægu geymslukerfi.

Til að uppfylla þessa skyldu sína hefur Seðlabankinn gert samning við NASDAQ Iceland um afnot af hugbúnaði til notkunar fyrir miðlægt geymslukerfi. Samningurinn nær einnig til þjónustu og reksturs á kerfinu sem uppfylla skal kröfur Evrópusambandsins til öryggisþátta og aðgengis sbr. tilmæli Evrópusambandsins frá 11. október 2007.

Netslóð geymslukerfisins er http://www.oam.is/

Þjónustuborð

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica