Umsóknir og tilkynningar vegna EMIR

Nauðsynlegt er að fá aðgang að kerfi Seðlabankans til að geta sent inn umsóknir og tilkynningar. Sótt er um aðgang með því að fylla út formið á nýskráningarsíðunni.

Þegar aðgangurinn er fenginn er hægt að finna formið sem um ræðir hér að neðan, skrá sig inn, fylla út formið sem birtist og senda svo inn umsókn eða tilkynningu.

IGT umsókn

Umsókn um undanþágu frá stöðustofnunarskyldu vegna afleiðuviðskipta milli aðila innan samstæðu, þar sem annar aðilinn er innan EES og hinn utan, skv. 4. gr. Evrópureglugerðar 648/2012.

Form fyrir IGT umsóknir

IGT tilkynning

Tilkynning um nýtingu undanþágu frá stöðustofnunarskyldu vegna afleiðuviðskipta milli aðila innan samstæðu, þar sem báðir aðilarnir eru innan EES, skv. 4. gr. Evrópureglugerðar 648/2012.

Form fyrir IGT tilkynningar

Tilkynning um að ófjárhagslegur mótaðili fari upp fyrir fjárhæðarmörk

Með skilum á þessu eyðublaði lýsir ófjárhagslegur mótaðili því yfir að hann stöður hans í neðangreindum flokkum afleiðna sé yfir þeim fjárhæðarmörkum sem kveðið er á um í EMIR og undirgerðum hennar:

  1. OTC-lánaafleiðusamningar
  2. OTC-hlutabréfaafleiðusamningar
  3. OTC-vaxtaafleiðusamningar
  4. OTC-gjaldeyrisafleiðusamningar
  5. OTC-hrávöruafleiðusamningar og aðrir OTC-afleiðusamningar sem ekki eru taldir upp í stafliðum a. til d.

Í tilfelli samstæða þarf einnig að fylla út C-hluta eyðublaðsins þar sem taldir eru upp þeir ófjárhagslegu mótaðilar innan samstæðunnar sem tilkynningaraðilinn tilheyrir og eru með lögfesti innan evrópska efnahagssvæðisins. Þá þarf að útlista alla tengda ófjárhagslega mótaðila í C-hluta eyðublaðsins. Ófjárhagslegir mótaðilar sem eiga ekki í OTC-afleiðuviðskiptum eiga ekki að vera í þeirri samantekt.

Form fyrir tilkynningar um að ófjárhagslegur mótaðili fari upp fyrir fjárhæðarmörk

Tilkynning um að ófjárhagslegur mótaðili sé ekki lengur fyrir ofan fjárhæðarmörk

Með skilum á þessu eyðublaði lýsir ófjárhagslegur mótaðili því yfir að stöður hans í neðangreindum flokkum afleiðna sé ekki lengur yfir þeim fjárhæðarmörkum sem kveðið er á um í EMIR og undirgerðum hennar:

  1. OTC-lánaafleiðusamningar
  2. OTC-hlutabréfaafleiðusamningar
  3. OTC-vaxtaafleiðusamningar
  4. OTC-gjaldeyrisafleiðusamningar
  5. OTC-hrávöruafleiðusamningar og aðrir OTC-afleiðusamningar sem ekki eru taldir upp í stafliðum a. til d.

Aðeins ófjárhagslegir mótaðilar sem hafa áður tilkynnt um að þeir séu yfir fjárhæðarmörkum skv. 1. mgr. 10. gr. EMIR þurfa að skila þessari tilkynningu.

Ef um samstæðu er að ræða þarf einnig að fylla út C-hluta eyðublaðsins. Þar eru taldir upp þeir ófjárhagslegu mótaðilar innan samstæðunnar sem tilkynningaraðilinn tilheyrir og eru með lögfesti innan evrópska efnahagssvæðisins. Skýra þarf frá öllum tengdum ófjárhagslegum mótaðilum á C-hluta eyðublaðsins. Ófjárhagslegir mótaðilar sem eiga ekki í OTC-afleiðuviðskiptum eiga ekki að vera í þeirri samantekt.

Form fyrir tilkynningar um að ófjárhagslegur mótaðili sé ekki lengur fyrir ofan fjárhæðarmörk
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica