Lífeyrismarkaður

  • Starfsfólk

Íslenskir lífeyrissjóðir starfa samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, en lögin tóku gildi hinn 1. júlí 1998. Grunnlöggjöf flestra aðila á fjármálamarkaði samanstendur af regluverki sem byggir á Evróputilskipunum sem teknar eru upp í EES samninginn. Þetta á þó ekki við um íslenska lífeyriskerfið þar sem regluverk lífeyrissjóðanna byggir að mestu á séríslensku regluverki.

Lög nr. 129/1997 eru í tólf köflum og gilda um alla lífeyrissjóði og vörsluaðila lífeyrissparnaðar eins og nánar er kveðið á um í lögunum.

Seðlabanki Íslands hefur framsýnt og áhættumiðað eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða, greinir helstu áhættuþætti í rekstri þeirra ásamt því að fylgjast með þróun á markaði. Þá fylgist Seðlabankinn með því að lífeyrissjóðir starfi í samræmi við lög sem um starfsemi þeirra gilda og að gripið sé til viðeigandi ráðstafana þegar tilefni er til. Bankinn leggur áherslu á góða stjórnarhætti innan lífeyrissjóða, áhættustýringu og innra eftirlit.

Seðlabankinn ber m.a. ábyrgð á eftirfarandi þáttum:

  • Stuðlar að því að eftirlitsskyldir aðilar séu fjárhagslega heilbrigðir, þeim sé stjórnað af fagmennsku og séu meðvitaðir um áhættu í starfsemi sinni.
  • Hefur eftirlit með því að eftirlitsskyldir aðilar starfi í samræmi við gildandi lög og reglur, þar á meðal að þeir stundi heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti, og bregst við frávikum á viðeigandi hátt.
  • Greinir og hefur skýra yfirsýn yfir áhættuþætti í starfsemi eftirlitsskyldra aðila, vaktar mikilvæga áhrifaþætti í starfsemi þeirra og grípur til viðeigandi ráðstafana.
  • Viðhefur reglulegt og framsýnt frumkvæðiseftirlit sem er áhættumiðað og byggist á áhættugreiningu og markvissri eftirlitsáætlun.
  • Þróar aðferðafræði í eftirliti í samræmi við alþjóðlegar kröfur, gildandi lög og reglur og tækni á hverjum tíma.
  • Gengur úr skugga um að eftirlitsskyldir aðilar séu upplýstir um eðli breytinga á lögum og reglum, þær væntingar sem að baki þeim liggja og séu í stakk búnir að mæta þeim.
  • Er virkur þátttakandi í umræðu um málefni tengd lífeyrismarkaði.
  • Tekur virkan þátt í erlendu samstarfi og fylgist með alþjóðlegri þróun á eftirlitsframkvæmd.


Lög og tilmæli

Hægt er að fletta upp lögum og tilmælum sem gilda um starfsemi lífeyrissjóða með einföldum hætti í leitarvél Seðlabankans.

Þjónustuvefur

Þjónustuvefur Seðlabankans tekur á móti gagnaskilum frá eftirlitsskyldum aðilum og sem og öðrum gagnasendingum, svo sem vegna mats á hæfi.

Talnaefni

Hér er hægt að finna upplýsingar um fjárfestingar lífeyrissjóða sem og samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða.

Spurt og svarað

Seðlabankinn hefur birt spurningar og svör í tengslum við lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða sem aðgengileg eru á heimasíðu bankans.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica